Málgagn Ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði
Ungir jafnaðarmenn í Hafnarfirði hafa verið iðnir við blaðaútgáfu. Þeir halda úti tímariti sem heitir MÍR, en það kom fyrst út árið 2001. Á því ári og því næsta komu út fjögur slík blöð. Þessi fyrstu blöð voru fjölrituð en engu að síður hin glæsilegustu. Forsprakkar blaðaútgáfunnar á þessum tíma – þeir Andri Ólafson, Símon Örn Birgisson og Valur Grettisson – lögðu sig enda í líma við að hafa blöðin sem veglegust. Þau voru afar róttæk og langt til vinstri, en auk þess var húmorinn aldrei langt undan.
Eftir að þessi fyrstu fjögur blöð komu út varð nokkurt hlé á blaðaútgáfu Ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði, en þó var ekki setið auðum höndum í útgáfumálum. Í árslok 2003 var þannig opnuð heimasíða félagsins – þessi sem þú hefur fyrir framan þig, MÍR.is.
Fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 2006 hófst svo blaðaútgáfan að nýju. Þá voru það þeir Þórður Sveinsson og Jón Steinar Guðmundsson sem tekið höfðu við keflinu og auk þeirra Brynjar Guðnason sem átti sinn skerf í útliti tímaritsins. Jón Steinar hefur hins vegar verið aðalumbrotsmaðurinn og útlitshönnuðurinn, en Þórður hefur smám saman fært sig upp á skaftið í umbrotinu. Hann er og ritstjóri tímaritsins. Undir ritstjórn hans hafa komið þrjú MÍR-blöð, hvert öðru veglegra.
Blöðin getið þið séð hér á síðunni í pdf-formi (gömlu MÍR-blöðin koma inn við fyrsta tækifæri).
Höfundaréttur © MÍR.is | Hönnun í umsjá Dansarinn.net