MÍR.is

Málgagn Ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði

Hamingjusama hóran er ekki til

31. maí, 2010 | Ritstjóri

Frelsi er eitt þeirra orða sem hefur verið tekið í gíslingu af fólki sem aðhyllist öfgastefnu. Öfgastefnan sem um ræðir er frjálshyggjan.

Frjálshyggjan boðar frelsi í öðru hverju orði (meira að segja nafninu á stefnunni).En um hvað snýst frelsi frjálshyggjunnar? Það snýst meðal annars um frelsi til að stunda vændi, frelsi til að kaupa og selja dóp og frelsi til að kaupa sig í gegnum lífið.

Hamingjusama hóran er hugtak sem margir hafa heyrt. Margir hafa meira að segja trúað því að hún sé til. Líklegast í Danmörku. Eru ekki allir „ligeglad“ þar? Hórurnar líka. Sannleikurinn er samt sem áður sá að hamingjusama hóran er ekki til, heldur er hún þjóðsaga sem fylgismenn frjálshyggjunnar hafa búið til, til að sýna að þeirra frelsi sé frelsi allra.

Frjálshyggjufrelsið er fyrst og fremst hugsað fyrir þá sem eiga peninga. Þeir eiga að vera frjálsir til að kaupa sér allt. Sama hvort það er á kostnað annara í samfélaginu eða ekki. Það eru rökin á bak við einkarekið heilbrigðiskerfi. Leyfa fólki að kaupa sér bestu þjón- ustuna, í staðin fyrir að allir borgi jafna skatta, svo að allir geti fengið bestu þjónustuna án þess að borga.

Jafnaðarstefnan er svo önnur stefna sem setur mikið púður í frelsið. Hún er líka stefna sem hefur hvorki öfga til hægri eða vinstri í pólitík. Frelsið sem jafnaðarfólk talar um setur ekki fókus á að leyfa fólki að díla með dóp eða stunda vændi, heldur snýst það frelsi um raunveruleg gæði. Gæði til menntunar og vinnu. Frelsi til að geta lifað lífinu án þess að hafa áhyggjur af því að þurfa að eiga margar milljónir til að borga sjúkrahúsreikninga, frelsi til að geta lært það sem þig dreymir um að læra, frelsi til að skapa listir og menningu og svo margt fleira sem frjálshyggjufólkið virðist hugsa um sem aukaatriði.

Jafnaðarstefnan lítur á að frelsið þurfi að vera til staðar fyrir alla, til að vera raunverulegt frelsi. Við eigum öll að hafa möguleika á sömu gæðum og við eigum öll að hafa möguleika á að skapa okkar eigin gæði út frá hæfileikum okkar. Hvort sem þeir hæfileikar eru á sviði lista og menningar, kennslu og miðlunar eða reksturs og skipulags.

Frelsi fæst ekki fyrr en við sitjum við sama borð þegar kemur að velferð og tækifærum til menntunar. Um leið og við tökum þessi tækifæri í burtu erum við að svifta einstaklingin sem ekki getur borgað fyrir menntun sína frelsinu, eða sá sem ekki getur borgað fyrir heilbrigðisþjónustuna sem viðkomandi þarf á að halda.

Frelsi felst því meðal annars í samhjálp og samvinnu. Það eru fáránlega rök að segja að það sé takmörkun á frelsi einstaklingsins að ætlast til af honum að hjálpa náunganum. Frelsi frjálshyggjunnar er ekki raunverulegt frelsi, en það er hinsvegar frelsi jafnaðarstefnunnar.

Núna er kominn tími á það að frelsa orðið „frelsi“ úr gíslingu frjáls hyggjunar og að fara að nota orðið eins og það á að vera notað, um raunverulegt frelsi.

Höfundaréttur © MÍR.is | Hönnun í umsjá Dansarinn.net